Við héldum stjórnarkjörsfund síðasta vetrardag á Grand Hótel, sem jafnframt var 35 ára afmælisfundur með mökum og þar kynnti Valur Helgason kjörforseti nýja stjórn sem var lýst réttkjörin.
Við það tækifæri voru félagar sæmdir aldursviðurkenningum, en í dag eru fjórir af stofnfélögum ennþá félagar í Jörfa. Þá var einum Jörfafélaga veitt silfurstjarna styrktarsjóðs Kiwanis fyrir frábær störf í þágu klúbbsins, en það var Jón Jakob Jóhannesson kjörsvæðisstjóri Eddusvæðis. Eignkonum okkar var svo þakkaður stuðningurinn í gegn um árin með snoturri Kiwanis nælu.